Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
24.3.2007 | 15:06
Gjallarhornið er á lífi...
Já Gjallarhornið er á lífi og það er rétt að biðja afsökunar á blogleysinu hérna síðustu vikuna. Ástæðan er sú að Gjallarhornið fékk vinafjölskyldu sína í heimsókn og einbeitti Gjallarhornið að þeim og því lítið bloggar. En núna verður þráðurinn tekinn upp að nýju.
18.3.2007 | 09:08
Ég veit afhverju er Alzeimer ólæknandi sjúkdómur!!!!
Á miðvikudaginn og föstudaginn var ég að vinna á 1500 manna læknaráðstefnu og fjallaði þessi ráðstefnua um Alzeimer og Parkinson. Þegar 1500 læknar koma saman í fjóra daga til þess að ráða ráðum sínum og reyna að komast að niðurstöðu um það hvernig má lækna þessa sjúkdóma sem hrjá allt of marga. En eftir að hafa unnið á þessari ráðstefnu þá hef ég misst alla trú á þessum læknum og þarna sá ég að þessir sjúkdómar verða alltaf ólæknandi. Ástæðan er einföld, þeir gera ekki annað en að éta og drekka kaffi. Það var morgunmatur klukkan 08:00, morgunkaffi klukkan 10:00, hádegismatur klukkan 13:00, síðdegiskaffi klukkan 15:30 og svo kvöldmatur klukkan 19:00. Þeir gera ekkert annað en að éta þessir blessuðu læknar og það er ekkert verið að vinna á vandanum. Ég ætla að leggja það til að á næstu ráðstefnu sleppi þeir kaffinu og reyni að vinna aðeins meira.
17.3.2007 | 17:19
Ef mér er mikið mál þá pissa ég bara í....
Hvort er betra að míga á rútugólfið eða í buxurnar? Ég er á því að drengurinn hafi brugðist rétt við að míga á rútugólfið. Það má alltaf þrífa gólfið en erfitt er það fyrir strákinn að sitja hlandblautur og í blautu sæti á leiðarenda. Rútubílstjórinn var greinilega annt um að halda sinni tíma áætlun. En hvar voru foreldrarnir, er allt í lagi að senda átta ára strák einan með rútu?
![]() |
Pissaði á rútugólfið þegar bílstjórinn neitaði að stoppa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.3.2007 | 17:07
Hvað er kynleiðrétting?
Hvaða nýyrði er þetta kynleiðrétting? Hefur ekki alltaf verið talað um kynskiptiaðgerð, og hvernig er hægt að leiðrétta kyn. Við fæðumst eitthvað ákveðið og það er ekkert hægt að leiðrétta það en það er hægt að skipta um kyn en í því fellst varla leiðrétting.
![]() |
Tvær kynleiðréttingaraðgerðir gerðar hér á landi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.3.2007 | 12:04
Þetta fer illa..........
Mig grunar að ástandið á milli Palestínumanna og Ísraela muni bara versna við þetta. Haniyeh segir að Palestínumenn hafi rétt til þess að verjast hersetu Ísraela og svo ætlar hann einnig að vinna að áframahaldandi vopnahléi milli Ísraels og Palestínu. Ég veit ekki hvernig hann ætlar að fara að því að framkvæma þetta tvennt en mig grunar að það sem gerist og það er að þetta kosti nokkur mannslíf á báðum endum. Ástandið þarna er skelfilegt og þetta lagar það líklega ekki.
![]() |
Haniyeh: Sjálfstætt ríki Palestínu á svæðunum sem hernumin voru 1967" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.3.2007 | 11:38
Glæsilegur árangur...
Það verður gaman að fylgjast með áframhaldandi sigurför þeirra Garðars
og Einars Bárða í hinum stóra tónlistarheimi. Hæfileikar Garðars eru
miklir og hefur þessi samvinna hans og Einars komið honum á
kortið. Það verður spennandi að fylgjast með þeim félögunum í
framtíðinni.

Garðar Thor Cortes vekur athygli á Englandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.3.2007 | 11:29
Gerði Hæstiréttur rétt....
Ég horfði á Kastljósið í gærkvöldi þar sem Helgi Seljan fjallaði um
þetta mál með KR-ingunum Agli Helgasyni og Örnu Schram. Mér fannst þau
öll vera á því að Hæsturéttur hafi þarna gert mikil mistök með því að
vísa þessari ákæru frá. Ég ber mikið traust til Hæstaréttar og ég verð
að segja að ég held að Hæstiréttur sé bara að dæma miðað við þau lög
sem að Alþingi setur og þessi málsmeðferð byggðist á. Miðað við
viðbrögð stjórnmálamanna við niðurstöðu hérðaðsdóms þá var strax
fjallað um að breyta þyrfti lögunum þannig að einstaklingar geti verið
ábyrgur fyrir þeirri vinnu sem þeir sinna í sinni vinnu. En það sem mig
langar að fá svör við er það að ef að strætóbílstjóri keyrir of hratt
og missir ökuleyfið getur hann sagt að hann hafi ekki verið að keyra
heldur Strætó BS sem hann vinnur hjá?

Mikill léttir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.3.2007 | 11:13
hahah þetta er svín....
Ég gat ekki annað en brosað örlítið út í annað þegar dóttir mín sagði í
morgun þegar ég var að lesa mbl.is "haha þetta er svín". Ég sprakk út
hlátri af því ég var að lesa frétt um Ingibjörgu Sólrúnu og fylgdi mynd
af Ingibjörgu fréttinni. Ég sjálfstæðismaðurinn hafði auðvitað húmor
fyrir þessu en sem góður uppalandi sagði dóttir minni að svona segði
maður ekki um fólk en þá benti hún á síðuna og þar var auglýsing frá
Bónus og þar var auðvitað svínið þeirra.

17.3.2007 | 07:22
Samúð með heyrnalausum....
Ég held að vinurinn minn og félagi Sigurður Kári hafi ekki valið rétt
orðalag þegar hann sagði í viðtali að menntamálanefnd hefði haft samúð
með málstað heyrnalausra. Umælin voru sögð vegna þess að frumvarp sem
Sígurlín Margrét flutti á Alþingi. Elsku besti Siggi minn heyrnalausir
þurfa ekki samúð þeir þurfa full mannréttindi.

16.3.2007 | 08:18
Skál fyrir því...
Gjallarhornið er ánægt með Guðlaug Þór í dag og fær hann plús í pyslu enda fyrir þetta. Ég segi bara það var mikið að þetta mál fór í gegn og það er eins gott að það fari alla leið. Skál í boðinu og í Hagkaup.
![]() |
Allsherjarnefnd afgreiddi frumvarp um afnám einkasölu ríkisins á léttvíni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |