Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Einstakur

"Einstakur" er orð

sem notað er þegar lýsa á

því sem engu öðru er líkt

faðmlagi eða sólarlagi

eða manni sem veitir ástúð

með brosi eða vinsemd.

"Einstakur" lýsir fólki

sem stjórnast af rödd hjarta síns

og hefur í huga hjörtu annarra.

"Einstakur" á við þá

sem eru dáðir og dýrmætir

og skarð þeirra verður aldrei fyllt.

"Einstakur" er orðið sem best lýsir þér.

(Teri Fernandez)

 

Þorsteinn Geirsson var svo sannarlega einstakur maður og það sá ég strax þó svo að kynni okkar hefðu ekki verið rosalega mikil en samt nóg til að átta mig á kostum þessa góða manns. Þorsteinn var svo sannarlega einn af þeim betri og fer hann of fljótt.


mbl.is Andlát: Þorsteinn Geirsson
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eigum við að ræða það eitthvað?

Það verður nú alveg að viðurkennast að lestur svona fréttar í morgunsárið er eitthvað sem kemur manni brosandi inn í daginn. Ég met það svo að þetta séu gríðarlega góðar fréttir fyrir Sjálfstæðismenn í borginni og ég vona svo sannarlega að þeir tryggi Þorbjörgu 2.sætið. Ég var farinn að sjá fyrir mér enn eina karlabaráttuna í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins en nei nei kemur þá ekki Þorbjörg Helga og skellir sér í baráttuna og það er frábært og gerir prófjörið skemmtilegra.  Þarna eiga sjálfstæðismenn möguleika á að stilla upp tveimur frábærum og frambærilegum stjórnmálamönnun í fyrstu tvö sætin og sýna þannig í verki nýja tíma í flokknum. 


Ég hef þekkt Þorbjörgu Helgu í nokkur ár og veit því vel hvaða persóna og stjórnmálamaður er þarna á ferðinni. Henni treysti ég 100% til þess að vinna heiðarlega og af festu að málefnum Reykjavíkur og tryggja það að grunnþjónustua samfélagsins virki vel og standi undir þeim kröfum sem gerðar eru til þeirra.

Ég segi bara eins og Ólafur Ragnar í Fangavaktinni "eigum við að ræða það eitthvað?" Þorbjörg Helga er glæsilegur stjórnmálamaður og nú vona ég að sjálfstæðismenn tryggi henni 2.sætið.


mbl.is Þorbjörg Helga stefnir á annað sætið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða ljóta mynd er þetta?

Á mbl.is ekki betri mynd af honum Óla mínum? Ég veit það að mamma hans verður alveg brjáluð þegar hún sér þessa mynd. Fegurð Óla fær ekkert að njóta sín þarna.

En til hamingju kæri vinur.....


mbl.is Valinn prestur í Seljaprestakalli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Toppnáungar

Þetta eru báðir alveg frábærir náungar og það verður erfitt að velja úr þarna
mbl.is Tveir sóttu um prestsembætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jens Garðar til forystu....

Ég vona svo sannarlega að Jens Garðar nái góðum árangri í þessu prófkjöri enda öðlingur á ferðinni þar. Jens Garðar stendur ávalt við sannfæringu sína og stundum hefur hann þurft að berja í borðið og segja vinum sínum til syndana og benda þeim á ljósið.

Ef að Sjálfstæðisflokkurinn ætlar sé að ná langt í þessu prófkjöri þá þarf Jens Garðar að vera í forystunni, svo er Jenni líka svo sætur InLove


mbl.is 10 í prófkjör D-lista í Norðausturkjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðar fréttir

Það eru góðar fréttir fyrir okkur stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins og kjósendur í Reykjavík að Guðrún Inga sé tilbúin í slaginn. Ég vona svo sannarlega að Guðrún Inga nái settu marki og komist inn á þing.

Nú skora ég á Reykvíkinga að láta ekki þennan frambjóðenda framhjá sér fara og tryggja henni öruggt þingsæti, við þurfum persónu eins og Guðrúnu Ingu inn á þing.

Vídó styður Guðrúnu Ingu og það átt þú að gera líka!!!!!!


mbl.is Gefur kost á sér í 4. sæti hjá Sjálfstæðisflokki í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jens er hreinræktaður.........

töffari og snillingur og mikið svakalega vona ég að Jens fái góða kosningu. Jens er týpan sem við þurfum á Alþingi, harðduglegur og vel útlítandi peyji sem hefur mígið í saltan sjó.

Ég styð Jens Garðar og það gerir Halldór háseti líka


mbl.is Stefnir á fjórða sætið í NA-kjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Netverslun frá 4990 kr á mánuði

Leiðinlegt er að heyra um ástandið á Laugarveginum en þegar verslunareigandi sér fram á það að leiguverð verslunarrýmis er svo hár að rekstur stendur varla undir sér þá skoðar hann aðra möguleiki.

Ég held að margir fleiri og fleiri fari út í netverslanir í framtíðinni sérstaklega þegar hægt er að fá netverslanir á 4990 á mánuði án stofngjalds hjá www.smartmedia.is

Ég persónulega kaupi mikið á netinu og hef aldrei lent í neinu veseni með það.


mbl.is Verslunareigendur loka búðunum og selja á netinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fosterinn brosir í hringi

Er ég þess viss að Fosterinn brosi í hringi núna og eitthvað segir mér að hann hafi komi nálægt þessu. Frábært fyrir Gauja að komast aftur út í þjálfun, trúi á það að hann blómstri þarna því ekki er hægt að blómstra í sementsreyk á Akranesi
mbl.is Guðjón hentaði okkur best
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hér má sjá þáttinn um Jón Ásgeir og félaga

http://www.area51.is/link.php?i=169

 


mbl.is Yfirlýsing frá Jóni Ásgeiri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband