Færsluflokkur: Dægurmál

Árni Johnsen í þýska sjónvarpinu.

Ég ætlaði að fara að athuga hvort ég gæti fundið útsendingu af Ísland -
Rússland á einhverri þýskri sjónvarpstöð þegar ég sé Árna Johnsen
syngja spila á gítar í Höfðabóli. Þá er þetta einhver þáttur sem heitir
Lundi, Tröll og Menn og er sýndur á ARTE. Þetta gleður eyjamann í
Salzburg að sjá eyjarnar fögru enda fallegast staður í heimi. 

Eru breskir karlmenn lélegir í rúminu?

Ég verð að segja það að gjallarhornið er orðlaust, er það virkilegt að fjórða hver kona vill frekar vera án kynlífs en farsímans síns. Farsíminn hefur þróast hratt frá því að snake var eini leikurinn og skjárinn var svarthvítur en að farsíminn sé betri en kynlíf það segir ýmislegt um þessa blessuðu bresku karlmenn. Ég er líka alveg viss að ef að karlmenn í Bretlandi væru spurðir úti í enska boltann og kynlíf þá væri fótboltinn nr 1. En miðað við þessa niðurstöðu þá ætti bresku símafélögin að heyra á markaðsetningu handa stelpunum þarna úti þær greinilega ELSKA farsíma.
mbl.is Farsíminn mikilvægari en ástarlífið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er það þessi sem spilar bridge við Gates?

Það er svakalegt að heyra að tölvuleikir geti tekið stjórnina yfir lífi einstaklings eins og þessi frétt hér að neðan segir okkur. Fyrir nokkuð mörgum árum þá spiluðum við félagarnir Championship Manager samfleitt yfir 30 tíma. Eftir það maraþon hef ég lítið spilað þann leik og aðra leiki. Spurningin að láta þessa krakka spila leikinn í tvo sólarhringa samfleitt þar til þau fá ógeð af leiknum og á endanum hætta þau.
mbl.is Tölvufíkill trylltist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar má ég syngja?

songvariÞessi blessuðu stefgjöld eru svo fáranleg að maður skilur ekkert í þeim sem áttu hugmyndina að þessum óskapnaði. En ég held samt að þessi dómur í Héraðsdómi Suðurlands sé fáranlegri en þessi stefgjöld. Ég þykist vita að þessi verslun sem að lendir í þessi sé hin magnaða Vöruval sem staðsett er í kúluhúsinu í eyjum. Ég hef komið inn á þessa kaffistofu og ég get vottað það að hún er líklega ein sú minnsta sem fyrir finnst á Íslandi, og það segir okkur að þetta útvarpstæki sem það var staðsett getur ekki með nokkru móti náð að hljóma um alla búð nema að útvarpstækið sé stærra en kaffistofan. Ég hef aldrei orðið var við tónlist þarna inni í þau skipti sem ég hef verslað þarna. Kaupmaðurinn er svo dæmdur til að greiða 23.216 krónur í STEF-gjöld auk dráttarvaxta og 150 þúsund króna í málskostnað, það má gera ráð fyrir því að mjólkin hækki í eyjum á morgun ásamt fargjaldinu í Herjólf.
En það er eitt mig mig langar að fá svar við. Ég á það til að raula með lögum sem ég er að hlusta á t.d. í bílnum eða þegar ég er á ferð með spilastokkinn (iPot) minn. Er hægt að rukka mig ef að ég er t.d. að syngja Lífið er yndislegt sem er eitt besta þjóðhátíðarlag sem samið hefur verið. Ég viðurkenni það hér að ég söng það nokkuð oft í Magdeburg þegar við vorum að vinna Frakka þannig að ég skulda ábyggilega stefgjöld fyrir það. Eða er kannski best fyrir mig bara að hætta að syngja?
Einnig tel ég þeir hjá Stef þurfi að komast að því hver samdi Ísland klapp klapp klapp Ísland klapp klapp klapp sem öskrað er á öllum landsleikjum í íþróttum. Sá einstaklingur ætti að eiga nokkrar krónur inni hjá stef.


mbl.is Sannað að viðskiptavinir í verslun heyrðu í útvarpi á kaffistofu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband