hahah þetta er svín....

Ég gat ekki annað en brosað örlítið út í annað þegar dóttir mín sagði í
morgun þegar ég var að lesa mbl.is "haha þetta er svín". Ég sprakk út
hlátri af því ég var að lesa frétt um Ingibjörgu Sólrúnu og fylgdi mynd
af Ingibjörgu fréttinni. Ég sjálfstæðismaðurinn hafði auðvitað húmor
fyrir þessu en sem góður uppalandi sagði dóttir minni að svona segði
maður ekki um fólk en þá benti hún á síðuna og þar var auglýsing frá
Bónus og þar var auðvitað svínið þeirra.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Blog-andinn Eyvar

HEHE .... já svona vilja hlutirnir nú fara í hringi það var nefnilega einhverntíma í fyrndinni man ég eftir að hafa fylgst með þegar littla bróður þínum voru kend ýmis lofsyrði um núverandi forseta voran en það vill svo skemmtilega til að hann er vinstri maður, þar á meðal var einmitt orðið  ''svín'' .... HEHE mér er nokkuð skemmt.

Blog-andinn Eyvar, 17.3.2007 kl. 11:33

2 Smámynd: Kjartan Vídó

Það var amma Vídó sem kenndi bróðir mínum að segja að Jón Baldvin væri drullusokkur, Ólafur Ragnar væri kommaskratti, Davíð Oddson væri krullupinni en Þorsteinn Pálsson væri vinur hans. Þetta lýsir ömmu Vídó í hnotskurn, hún er ekkert að fela skoðun sína á mönnum og málefnum og dálæti hennar á Þorsteini mun aldrei minnka enn í dag kallar hún hann fallegasta mann þjóðarinnar.
En amma Vídó er einn besti stjórnmálamaður sögunnar hún hefur bara ekki haft stjórnmál sem atvinnu.

Kjartan Vídó, 17.3.2007 kl. 11:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband