Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Gleðilegan pálmasunnudag....

Já þá er vika í páskadag og vika er ekki langur tíma þegar beðið er eftir því að komast í páskegg W00t
Fyrir nokkrum árum starfaði ég sem sunnudagaskólakennari í Garðabæ og hafði mikið gaman að, einu sinni á pálmasunnudag spurði ég krakkana afhverju pálmasunnudagur kallaðist pálmasunnudagur. Ég gaf þeim svo upp nokkra skemmtilega valmöguleika en krakkarnir höfðu þetta auðvitað rétt. En ég ætla að biðja fólk sem slæðist hérna inn að svara þessari spurningu minni í kommentum.

Afhverju er pálmasunnudagur kallaður pálmasunnudagur:

1: Asnin sem Jesús sat á þegar hann kom inn í borgina hét Pálmi
2: Þetta væri dagur allra Pálma á Íslandi.
3: Af því að fólkið veifaði pálmagreinum þegar Jesú kom á asnanum inn í borgin
3: Pálmasunnudagur er sá sunnudagur sem Pálmi Haraldsson eigandi Iceland Express fæddist
4: Á þessum sunnudegi byrjaði Pálmi Gestsson sinn feril í Þjóðleikhúsinu.


Soldið spes!!!

Það er ekki hægt að segja annað en að þessir feðgar séu báðir soldið spes...


mbl.is Dáist að kynkrafti föður síns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bara ef það kemur mér við...

Ritstjórar Us Weekly hafa uppljóstrað því að þeir hafi verið að horfa á brjóstin á Victoru og niðurstaða þeirra af þeirri rannsókn er að hún eigi að vera í brjóstarhaldara. Já það er margt skrítið í Ameríku en þessir ritstjórar flokkar líklega sem þeir skrýtnustu. Og hvað eru mennirnir að pæla að senda þetta frá sér.


mbl.is Viktoría beðin um að nota brjóstahaldara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég veðja á ÍR-inginn...

Mig grunar að ÍR-ingurinn Hólmgeir vinni þessa kosningu um þetta lausa sæti. Því miður held ég að Hlyndur Sigmars eyjamaðurinn góði eigi ekki séns. Hann hefur sagt sína skoðun umbúðalaust á mönnum og málefnum og þær skoðanir eru ekki alltaf þær vinsælustu.
mbl.is Þrír vilja í stjórn HSÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er liðinu alvara?

Ég veit ekki hvort að blaðamaður mbl.is sé að gera grín að Ómari og co eða þá að Ómar og co eru alveg að missa það. Kannski að þetta framboð sé eitthvað svipað og biðlistinn eða funklistinn á Íslafirði.
mbl.is Íslandshreyfingin vill gera lífið skemmtilegra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Halldór Karl Högnason er bara snillingur....

Mikið svakalega var ég ánægðu með það að Bloomberg skuli vitna í félaga minn Hr. Hkarl. Það er greinilegt að Bloomberg velur menn með viti.


mbl.is Veðja á íslenska vaxtalækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

fá einn Eið Smára takk!!!

Christiano Ronaldo er frábær leikmaður og það er frábært ef að Man Utd ná að landa nýjum samningi við hann. Svo væri ekki verra ef að Eiður okkar Smári kæmi svo til okkar í sumar....
mbl.is Ronaldo vonast eftir langri dvöl á Old Trafford
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sko mína menn í eyjum!!!!

Góður árangur hjá mínum mönnum í ÍBV enda eigum við ekki heima í 1.deild, úrvaldsdeildinni er okkar deild. Það sem ég er ánægðastur með er að stóran hluta vetrar spilaði ÍBV með heimamenn í liðinu.
mbl.is ÍBV upp í úrvalsdeildina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verð ég þá kærður líka?

Ég t.d. næ aldrei að syngja hann án þess að það komi falskur tónn, ég næ aldrei hæstu tónunum og þetta endar allt í rugli. Ég vona að ég verði ekki kærður fyrir það!
mbl.is Spaugstofumenn brutu lög um þjóðsönginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég græt þetta ekki...

TaB er líklega versti drykkur sem framleiddur hefur verið.

mbl.is TaB af markaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband