Ég elska þig Ingibjörg Sólrún!!!!.

lovjaKæra Ingibjörg ég rita þér smá bréf sem má flokka undir ástarbréf. Ég hef lengi haft gaman að þér en núna er mér farið að þykja vænt um þig og stundum segi ég við sjálfan mig að þú sért þess virði að elska. Ég ætla að rökstyðja það afhverju ég elska þig svo mikið.


Ingibjörg þú mátt eiga það að þú ert hreinskilin og þú berð hag þjóðarinnar fyrir brjósti. Þú ákvaðst að láta alla þjóðina vita hvaða skoðun þú hefðir á þínum eigin þingflokki þegar þú sagðir að honum væri ekki treystandi. Og þú elskar samt þinn þingflokk það mikið að þú ætlar að halda tryggð við hann og bjóða kjósendum upp á næstum sömu einstaklinga og kjósendur treystu ekki fyrir fjórum árum. Þarna sýndir þú miklar ættjarðarást, þú varst hreinskilin og auðveldaðir mörgum sem höfðu hugsað sér að kjósa ykkur valið því með orðum þínum bentir þú þeim á vitleysuna og nú eru miklar líkur eru á því að þeir kjósi eitthvað annað en Samfylkinguna í næstu kosningum, allt þér að þakka.


Og þú mátta eiga það að það þarf mikin kjark að gefa það út að stjórnmálaflokkur hugsi allt of mikið um pólitík og eigi að snúa sér að einhverju öðru.  Þú  greinilega sérð  fram í tímann,  því þú hefur séð  niðurstöður komandi kosninga fyrir þegar þú bentir flokknum þínum á aðrar brautir en pólitíkina. Og hver veit kannski verður Samfylkingin íþróttafélag í lok árs. Þá legg ég til að Lúðvík verði fyrirliði enda maður með reynslu úr íþróttunum.


En elsku Ingibjörg ég get ekki með nokkru móti skilið gæsku þína gagnvart þjóðinni þegar þú fórnaðir þér og þínum frama. Gafst þú þjóðinni það til kynna að sá stjórnarandstöðu flokkur í kaffibandalaginu sem fengi mest fylgi í kosningunum fengi forsætisráðherrastólinn næðist að fella núverandi stjórn. Með þessum orðum hefur þú náð að koma mörgum kjósendum frá Samfylkingunni og það hefur þú gert af einskærri ást við þjóðina þína.
Og ekki nóg með heldur treystu þínir eigin flokksmenn heldur ekki neinum konum nema þér til að leiða lista það er mikið hrós fyrir þig enda hefur þú alltaf fórnað þér fyrir flokkinn. Flokkurinn elskar þig alveg sama hvað þú gerir.

En elsku besta Ingibjörg, ég vona svo sannarlega að draumur þinn rætist og Samfylkingin þín verði í stjórnarandstöðu á næsta kjörtímabili. Þetta er að takast 18.1% í nýjustu könnun er frábær árangur. Þér hefur tekist að fæla fjöldan allan af fólki frá ykkur á mjög stuttum tíma og verður þetta að teljast met.

En elsku hjartað mitt, ég verð að hætta að skrifa núna. Ég opinbera hér ást mína á þér og ást mín er svo mikil að ég ætla að fara að þínum ráðum og kjósa eitthvað annað en Samfylkuna. Haltu áfram að gera það sem þú ert að gera, þú ert að ná frábærum árangri. 

Lovja

Þinn Vídó 


mbl.is Fylgi Samfylkingar minnkar enn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Snilldar grein hjá þér drengur.

Ásdís Sigurðardóttir, 13.4.2007 kl. 20:14

2 Smámynd: Snorri Bergz

haha, snilld

Snorri Bergz, 13.4.2007 kl. 20:19

3 identicon

Þú ert hálfviti.

Hlynur Vídó (IP-tala skráð) 15.4.2007 kl. 15:22

4 Smámynd: Kjartan Vídó

Kæri bróðir þetta er eitt mesta hrós sem að ég hef fengið frá þér í langan tíma

Kjartan Vídó, 15.4.2007 kl. 21:53

5 identicon

Þið eru sæt saman...

Gunnlaugur Snær Ólafsson (IP-tala skráð) 16.4.2007 kl. 16:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband