Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Þeir ráða við þetta hjá slökkviliðinu..

Það er gott til þess að vita að slökkviliðinu hafi gengið greiðlega að ná tökum á ástandinu.
mbl.is Tilkynnt um reyk við Þjóðleikhúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða rugl er þetta eiginlega.

Ég skil nú ekkert í Ferguson að hafa ekkert hring í Smárann okkar, ég hringi strax í karlinn og við klárum málið í vikunni. Við getum ekki létið Eið greyið bíða með svona.
mbl.is Eiður: Hef ekkert heyrt frá Manchester United
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ófært í Reykjavík?

Það getur ekki verið annað en ástæða þessarars seinkunar sé sú að veðrið í Reykjavík sé slæmt, það er alltaf blíða í Vestmannaeyjum og alltaf lognið. Það versta er bara með lognið að stundum fer það hratt yfir.
mbl.is Leik Fram og ÍBV seinkað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott hjá Google en afhverju Brandurinn er ekki á Google Earth?

kofiÞetta er skemmtilegt concept hjá þeim google mönnum, og þetta er sniðugt hvernig þeir gefa upplýsingar um stöðu mála í Darfur. Eitt sem ég er gríðarlega óánægður með er að þegar skoðaðar eru Vestmannaeyjar þá eru upplýsingar um Álsey og Suðurey en ekkert um Brandinn. Sko fólk verður að gera sér grein fyrir því að Brandurinn er fallegasta eyjann í Vestmannaeyjaklasanum. Það að setja þessar hjálegur eins og Ásley og Suðurey þarna inn er bara brandari því ekkert er varið í þessar eyjur. T.d. eru þeir sem veiða í Suðurey svo leiðinlegir að þangað hefur ekki komið gestur í mörg ár og þeir í Álsey rata ekki út í sína eyju og villast reglulega á leiðinni þangað. Þeir í Ásley hafa ákveðið að setja línu í Stórhöfða til að leiðbeina sér rétta leið. 

Brandurinn lengi lifi húrra húrra húrra... 

ATH: Ég er EKKI á neinn hátt að bera saman ástandið í Darfur í Brandinum, enda ekkert ástand í Brandinum en neyðarástand í Darfur sem er alvarlegur hlutur.


mbl.is Google hjálpar Darfur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

verður bjór seldur um borð í Herjólfi...

Á síðasta bæjarráðsfundi í eyjum lá fyrir umsókn Eimskips rekstraraðila Herjólf þar sem þeir sóttu um leyfi til sölu áfengi um borð í þessu frábæra skipi. Ég held að það sé hið besta mál að selja áfengi þarna um borð en ég geri ráð fyrir því að ekki verður selt áfengi þarna yfir þjóðhátíðina enda þá er öll meðferð áfengra drykkja bönnuð um borð.  En þá er spurning hvernig þeir ætla að útfæra þetta, má þá bara drekka í efri salnum, eða selja þeir bjórinn út frá kaffiteríunni? En þó ég fagni þessu þá er ég samt eitthvað smeykur við þetta.

Hvar voru Bjöggi, Lúlli og Robbi?

Veit einhver hvar skytturnar þrjár á suðurlandi hjá Samfylkingunni voru í Kastljósinu í kvöld á borgarafundi á suðurlandi?

Góðan bata...

Það er nú meira hvað ráðherran hefur verið óheppinn með þessu veikindi sín síðustu vikurnar. Ég óska Birni góðan og skjótan bata og vonandi kemst hann í gang eins fljótt og hægt er. Björn er að mínu mati okkar albesti stjórnmálamaður. Hann er skemmtilegur að tala við og hann er fullur af fróðleik um hinn ýmsu málefni. Dómsmálaráðaneytið hefur verið í góðum höndum hjá Birni og ég trúi ekki öðru en að hann verði þar við völd eftir næstu kosningar. 


mbl.is Björn Bjarnason á sjúkrahúsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Róm rifin niður á einum degi..

Oft er sagt að Róm hafi ekki verið byggð á einum degi, en í dag var hún rifin niður á aðeins 45 mín. Þegar þetta er ritað þá er Man Utd að vinna 4-0 og það í hálfleik. Ef að Bayern vinnur á morgun þá er ég bókað að fara til Munchen og horfa á Bayern Munchen - Man Utd spila. Þetta eru mín lið í boltanum fyrir utan ÍBV og Salzburg Redbull. Svo var Salzburg Redbull í hokký að verða heimsmeistari félagsliða (held að þetta heitir það skyldi ekki alveg nágrannan) í kvöld og mikið partý í Salzburg í kvöld....
mbl.is Man.Utd. komið í 3:0
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vertu velkominn....

Mikið svakalega væri það falleg sjón að sjá Eið Smára spila í Man Utd búning, ég myndi fella tár á þeim degi þegar samningar yrðu undirritaðir. Eiður er klassa leikmaður, Man Utd hefur oft verslað leikmenn sem ekki flokkast  sem "heimsklassa" leikmenn og þeir hafa skilað sínu fyrir liðið. Eiður Smári myndi sóma sig vel hjá Man Utd. Ég segi komdu fagnandi þegar þú kemur því ég trúi ekki öðru en það verður skrifað undir samning við hann í sumar.
mbl.is Arnór: Hef ekkert heyrt frá Manchester United
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju þetta fylgishrun Ingibjargar?

Staða Ingibjargar Sólrúnar og Samfylkingarinnar er slæm þessa dagana og hafa stjórnmálaspekingar þessa lands farið mikin útaf þessum blessuðu skoðannakönnunum sem sýna þessu slæmu stöðu. En ég hef fundið ástæðuna og hana má rekja til gamlársdagsins síðasta. En í þættinum Krydd síld á Stöð 2 sagði Ingibjörg eitthvað á þá leið að sá stjórnarandstæðuflokkur sem kæmi stæðstur út úr kosningunum fengi forsætisráðherrastólinn ef Kaffibandalagið kæmist að völdum. Á gamlársdag var nefnilega Samfylkingin með ágæta stöðu gagnvart VG, en frá þessum degi og þessum ummælum hefur fylgið minnkað frá degi til dags. Sú saga gengur nú um bæinn að Ingibjörg hafi fengið mann sinn til að fá þessa upptöku frá Stöð 2 og eyða henni.
Ég  veit ekki hvort að ég sé eitthvað skrýtinn en mér hefur alltaf þótt vænt um Ingibjörgu og hún er ein af mínum uppáhaldsstjórnmálamönnum og ástæðan fyrir þessari ást minni er að hún er að koma Samfylkingunni niður fyrir 20% og það ber að þakka.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband