Að spila með handklæði á höfðinu.

Hvernig getur dómari ályktað um það að handklæði geti skapað leikmanni hættu í knattspyrnuleik, er dómarinn að tala um hættuna á einelti? Ég skil þetta ekki, mig langar nú ekki mikið að prufa þetta enda er ég nógu lélegur fótboltamaður án handklæðið. Ef einhver vill spila með handklæði þá má hann það mín vegna, en hættan er fáranleg rök fyrir banninu.
mbl.is Bannað að leika knattspyrnu með handklæði á höfði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjónusta Heimsferða á heimsenda...

Magnað fyrirtæki Heimsferðir, tengdamamma og tengdaamma eiga bókað hingað út á laugardaginn og heim eftir viku. Ætluðu að nota beinaflugið hingað þannig að það væri auðveldara fyrir þá gömlu að koma og heimsækja okkur. Í dag hringir svo starfsmaður Heimsferða og tilkynnir að búið sé að breyta heimfluginu. Vegna þess hversu bókað farþegar séu fáir þá ætli þeir að fella það niður og keyra með alla í rútu í 3-4 tíma til Fredrikshaven og fljúga heim með IcelandExpress. Ég hringdi og ræddu í dag við starfsmenn Heimsferða og segja þér að þeir geti þetta. Í bætu ætli þeir að bjóða uppá samlokur og vatn í rútunni. Frábært þjónustufyrirtæki.

Yngsti prestur landsins..

Félagi minn og vinur úr eyjum Ólafur Jóhann hefur fengið titilill yngsti prestur landsins og tekur hann við af félaga okkar Guðna Má. Það er frábært að svona mikill snillingur eins og OJ sé orðinn prestur og er verður hann eitt af okkur bestu mönnum innan kirkjunar. Til hamingju kæri vin.....
mbl.is Ólafur Jóhann Borgþórsson yngsti starfandi prestur landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gjallarhornið komið úr fríi..

Þá er gjallarhornið komið frá Ítalíu, skaust að Gardavatni um helgina. Þangað eru ekki nema fjórir og hálfur tími í keyrslu frá Salzburg. Áttum frábæran tíma með vinum okkar þar. Stefnum auðvitað þangað aftur innan nokkra vikna. Vorum í bæ sem heitir Desenzano, keyrðum um sveitina, fórum á vínmarkað, borðuðum góðan mat og nutum lífsins.

Ég fékk e-mail frá Jóni Ásgeiri í morgun

bref1

Núna er bara að pakka niður og fara að ferðast með honum. Kannski að þetta e-mail leysi Baugsmálið, hver veit...


Vinir í vandræðum.

Ég veit ekki hvað ég hef gert af mér. Flestir vinir mínir eiga í persónulegum vandræðum þessa daganna og ég hef ekki undan að svara símtölum frá þeim. Fyrst var það Whitney Houston og hennar vandamál, ég náði að koma henni til hjálpar og stendur stelpan sig vel í dag. Svo var það George Bush sem var í vandræðum með dætur sínar og djammið á þeim. Gjallarhornið fór auðvitað í málið og náði að koma systrunum í skylning um það að áfengi væri ekki að gera þeim gott. Miðað við síðasta samtal mitt við Bush þá virðist ástandið á þeim vera betra og mun ég hitta þær aftur við fyrsta tækifæri. Svo er það sorgarsagan af Britney, ég bloggaði um daginn að ég hefði yfirgefið hana og hún væri ekki lengur vinur minn. Nei Nei, mamma hennar hringir í mig og ég er beðinn um að koma henni í meðferð eftir atriði síðustu viku hjá henni. Svo skrifa blöðin út í heimi að mamma hennar hafi hringt í Justin Timberlake, já nei nei Gjallarhornið var settur í málið ekki einhver smjörkarl.
Ég var að vona að þessu færi nú að ljúka. Í gær hringi Angelina Jolie í mig og bað mig að finna handa þeim hjónum ráðfjafa. Ég ræddi aðeins við þessa elsku og komumst við að því að það væri best að ég tæki þau í viðtal, þannig að næsta vika fer í það að sjalla þetta vandamál þeirra. Ég veit eiginlega ekki hvar þetta endar. Þetta þotulið er að gera mig brjálaðan.
mbl.is Samband Jolie og Pitt sagt í vanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Britney farin í meðferð..

Einn "besti" tónlistarmaður sem við höfum átt Britney Spears hefur
ákveðið að fara í meðferð eftir að hafa snoðað sig og fengið sér tattó.
Ég skil hana ekki alvega, ég snoðaði mig nokkrum sinnum þegar ég var
krakki og ekki fór ég í meðferð. Tattó hef ég ekki, þannig að þegar
þetta tvennt saman er kannski hættuleg blanda. Þannig í framtíðinni mun
ég reyna að fá mér ekki tattó og snoða mig sama kvöldið því þá verð ég
að fara í meðferð. En vonandi nær hún sér úr þessu rugli óttarlegt rugl
á vænu.
mbl.is Britney Spears farin í meðferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íþróttaálfurinn í Salzburg.

Í dag er haldið upp á öskudaginn hér í Salzburg og fór dóttir mín í búning á leikskólann og valdi hún að vera sjóræningi í ár. Á síðasta ári fór hún sem Solla stirða það þekkti engin þennan karakter og þurftum við að útskýra hver Solla væri. En í ár var einn lítill strákur klæddur í íþróttaálfsbúning. Segið svo að fólkið hérna sé ekki að læra að hetjurnar koma frá Íslandi.


Dagurinn sem vélstýran fór frá eyjum...

Skemmtileg lýsing hjá Önnu Kristjáns frá þeim degi sem hún yfirgaf paradís.

 Hér má lesa pistilinn:

http://velstyran.blog.is/blog/velstyran/

 


Breytingar á fjölmiðlamarkaðnum!!!

Heimur fjölmiðlanna breytist hratt. Í dag frétti ég að héraðsblaðið Fréttir í eyjum væri að kaupa upp sinn samkeppnisaðila. Fréttir hafa verið gefin út í fjölda ára og fyrir fimm árum byrjaði að koma út vikulega blaðið Vaktin. Vaktin rekur jafnframt www.eyjar.net sem er fréttasíða fyrir Vestmannaeyjar. Fréttum er dreift til áskrifenda en Vaktin hefur komið án endurgjalds með póstinum. Ég get ekki með nokkru móti séð að þessi kaup frétta sé af viðskiptalegum toga enda markaðurinn í eyjum er lítill og það hlýtur að vera erfitt að vera með tvo blöð fyrir 4000 íbúa. . Eftir mínum bestu heimildum mun Vaktin halda áfram að koma út. Mig grunar að þarna sé samt verið að þakka niður í rödd sem að sumir hófar eru ekki hrifnir af. Ég hef alltaf haft gaman af Vaktinni, gott blað sem hægt var að lesa á netinu. Ég vona að Vaktin komi út sem lengst.
Svo eru það önnur vonbrigði sem ég frétti um síðustu helgi. Ég hef haft lengi mikin áhuga á matreyðslu og ákvað fyrir um áramótin að gerast áskrifandi að blaðinu Bistró. Ég hef fengið sent eitt tölublað og var ég ánægður með það og hlakkaði til að fá það næsta. En núna hef ég fengið það staðfest að Birtingur hefur keypt Bistró og geri ég ráð fyrir því að blaðið verði lagt niður.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband