15.9.2007 | 09:12
Ásdís Halla á Bessastaði.
Ég hef trú á því að mín pólitíska móðir stefni á Bessastaði. Hún yrði glæsilegur fulltrúi Íslands. Ég skora á alla sem eru sammála mér að kommenta hér að neðan og ég mun koma þeim svo á framfæri til Ásdísar.
Hugsið ykkur andlitslyftinguna fyrir Bessastaði að fá hana þangað.
Forstjóraskipti hjá BYKO | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Fórst þú öfugt fram úr rúminu ímorgun ? er ekki allt í standi ? nei takk við skulum ekki bera svona á borð fyrir þjóðina....
Hulda (IP-tala skráð) 15.9.2007 kl. 09:23
Þetta er hreint ekki svo vitlaust. Hún fengi mitt atkvæði... nema Davíð fari völlinn
Eiríkur Ingvar Ingvarsson, 15.9.2007 kl. 09:34
Mér líst vel á Davíð í embættið. Ekki sem forseta heldur til að tryggja honum loksins sómasamleg eftirlaun.
Árni Gunnarsson, 15.9.2007 kl. 10:02
Á Bessastaði með hana.
Gætum ekki fengið betri manneskju.
Einar Halldór
Einar Halldór Jónsson (IP-tala skráð) 15.9.2007 kl. 13:45
Þótt það kunni ekki að þykja tímabært að gera ráð fyrir forsetaskiptum á næsta ári er allt í lagi að viðra hugsanlega eftirmenn Ólafs Ragnars. Mig minnir að vísu að hann hafi gefið í skyn fyrir kjörið 1996 að ekki yrði um 16 ára setu að ræða, en minna má á að bæði Vigdís og Ásgeir Ásgeirsson sátu í 16 ár.
Ef á annað borð er farið að bollaleggja um frambærilegar konur vil ég minna á Berglindi Ásgeirsdóttur. Ef menn kynna sér feril hennar held að ljóst megi vera hún hafi hlotið betri undirbúning undir embættið en nokkur önnur kona og er glæsileg á alla lund.
Ómar Ragnarsson, 15.9.2007 kl. 17:32
Man enginn eftir Jónínu Ben?
Árni Gunnarsson, 16.9.2007 kl. 13:30
Heill og sæll, Kjartan og aðrir skrifarar !
Kjartan minn ! Er ekki nóg komið, af hérhættinum og rándýru glysinu, með því að halda þessu embætti úti; öllu lengur ?
Hugleiddu, hvað landskassinn yrði þeim krónum ríkari, yrði þetta prjál aflagt, með öllu. Snobbi og monsarahætti er óþarfi, að halda á lofti. Næg verkefnin hér á Íslandi, fyrir þessa fjármuni, sem lagðir hafa verið í þetta, þar með taldar betri samgöngur, til handa ykkur Eyjamönnum, sýnist ekki af veita.
Með beztu kveðjum, úr Árnesþingi / Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 16.9.2007 kl. 16:10
Ádís Halla væri flott sem forseti.
Myndi án efa auka virðinguna fyrir embættinu
Gísli Bergsveinn Ívarsson, 17.9.2007 kl. 13:48
Skorum á Ólaf að vera áfram, helst 20 ár í viðbót. Það er enginn betri í Bessastaði.
Birgir Ingvarsson (IP-tala skráð) 17.9.2007 kl. 17:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.