Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
3.6.2007 | 17:18
Hvað var gert við fötin?
Hvernig er tryggtað fötin hjá þessum 2000 einstaklingum ruglist ekki, fá allir plastpoka eða er það bara hvers og eins að sjá til þess að hann finni fötin? Eru kannski um 1000 stripalingar að labba um götur Amsterdam að leita að fötunum sínum?
2.000 nektarfyrirsætur í Amsterdam | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.6.2007 | 15:27
Hroki?
Nei það væri móðgun við hrokan sjálfan að bendla Mourinho við hroka, Mourinho er eitthvað miklu meira en hrokagikkur.
Mourinho: Ég er ósnertanlegur hjá Chelsea | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.6.2007 | 15:23
Metnaður hjá West Ham...
Var ekki liðið örugglega að bjarga sér frá falli fyrir nokkrum vikum og nú bjóða þeir í leikmenn eins og þeir séu með betri liðum í boltanum. Þeir eiga peninga en getuna vantar og nú á að kaupa hana.
Þrír orðaðir við West Ham í dag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.6.2007 | 15:20
Afhverju er ekki hægt að lykta af gömlum og nýjum sjómanni?
Ég að skólakrakkar í Reykjavík þekki persónulega ekki marga sjómenn og því væri sniðugt á næsta ári að hafa sjómenn til sýnis, bæði gamla og nýja og það mæti þá alveg þefa af þeim svona til skemmtunar.
Lyktað af misgömlum fiski á Hátíð hafsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.6.2007 | 15:18
Hvað svo?
Sat hann þá á klósettinu í 5 tíma eftir allt þetta át eða ældi hann kannski þessu öllu upp.
Heimsmet: Borðaði tæplega 60 pylsur á 12 mínútum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.6.2007 | 15:17
Rudolph Giuliani næsti forseti?
Ég hef lengi haft miklar dálætur á Rudolph Giuliani og nýlaga las ég bók sem hann skrifaði um það hvernig hann vann dagana eftir 11.september og hvernig vinnur dagsdaglega sem leiðtogi. Ég vona svo sannarlega að hann nái að vera forseta frambjóðandi Rebúblikanaflokksins enda er hann að mínu mati sá eini sem hefur það sem þarf til að verða forseti Bandaríkjana.
Giuliani og Clinton enn með forustu; Thompson gæti aukið fylgið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.6.2007 | 07:41
Vel við hæfi á sjómannadagshelgi..
að það komi ný þyrla inn í flugflota Landhelgisgæslunar enda er þyrslusveitin eitt mikilvægasta tækið sem sjómenn treysta á þegar sjóslys verða. Starfsmenn gæslunar eru á heimsmælikvarða og það er ótrúlegt að lesa við hvað aðstæður þeir þurfa að vinna. Ég óska gæslunni og öllum til hamingju með þessa nýju þyrlu.
Ný björgunarþyrla til Landhelgisgæslunnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.6.2007 | 07:36
Breyttir tímar...
Það er ánægjulegt að lesa það að atvinnumál ungs fólks sé í góðum málum og þessir einstaklingar geti auðveldlega fengið vinnu í sumar. Fyrir nokkrum árum var þessi sami aldur í vandræðum með að fá vinnu yfir sumartímann. Það sem hefur líka breyst að fólk er eldra þegar það ræður sig í sína fyrstu vinnu, ég vann t.d. hálfan daginn í humri sumarið áður en ég fór í 9.bekk. Í dag þekkist það ekki og enn lengra aftur í árum voru krakkar enn yngri byrjuð að vinna og var það þá ekkert tiltökumál.
Auðvelt fyrir ungt fólk að fá sumarvinnu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.6.2007 | 07:22
Til hamingju með daginn sjómenn....
Vona að sjómannadagurinn í ár verði sjómönnum og aðstandendum þeirra ánægjulegur, ég óska fyrrverandi starfsbræðrum mínum í sjómannastéttinni til hamingju með daginn.
Sjómannadegi fagnað um allt land | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.6.2007 | 20:47
Hvernig er þetta hægt?
Nú sá ég ekki landsleikinn í dag þar sem hann var ekki sýndur á netinu. En það sem kemur mér á óvart er að Liechtenstein skuli yfir höfuð geta valið í landslið. Félagi minn sem ég spjallaði við í dag benti mér á þá staðreynd að í Liechtenstein bú um 34.000 manns c.a. helmingur karla og helmingur konur. Þá höfum við 17.000 karlmenn á öllum aldri, gefum okkur að þeir sem geta spilað með A landsliðið séu á aldrinum 17-35 ára. Þá ættum við að hafa um ca 6.000 karlmenn eftir. Þá þurfum við að taka til greina að stórhluti þeirra hefur ekki áhuga á knattspyrnu, spilar tölvuleiki, á við veikindi að stríða, er lélegur í knattpyrnu og svo framvegis. Þá ættum við að geta fallist á það að um 3.500 karlmenn í Lichtenstein eru gjaldgengir landsliðið en auðvitað eru þeir ekki allir sem hafa þá geti til að spila með landsliðinu. Þá ættum við ef að við erum sanngjörn að geta farið niður í um 60 leikmenn en það gefur okkur það 5.4 leikmenn eru um hverja stöðu á vellinum án varamanna. Ég tel að Liectenstein ætti að vera heppið að geta valið í lið en samt ná þeir góðum árangri gegn okkur. Ástæðan er einföld að mínu mati. Það vantaði eyjamenn í liðið í dag!!!!
Sköpuðum okkur ekki nógu mörg færi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |