Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Aðstoðarkona

væri ekki réttara að segja að Kristrún væri aðstoðarkona utanríkisráðfrúr?
mbl.is Kristrún Heimisdóttir ráðin aðstoðarmaður utanríkisráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Redknapp út úr skápnum...

Harry hefur alltaf verið hrifinn af Hemma Hreiðars, vona að Hemmi standi sig hjá Portsmouth enda frábær leikmaður á ferð.

En vissir þú að Hermann Hreiðarsson var í 13.sæti á lista Þjóðvaka í kosningunum 1991, ég bíð spenntur eftir því að Hemmi komi aftur heim og skelli sér í pólítíkina.

mbl.is Redknapp: Alltaf verið hrifinn af Hermanni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég hélt að þetta væri grín...

Þegar ég las fyrirsögnina þá hélt ég að það væri verið að fjalla um sketch úr Fóstbræðrum eða Spaugstofunni.Ég verð að segja að þessi meðferð er mögnuð, eru það sálfræðingar sem taka viðtalið við vændiskaupendur? Gengur maður bara þarna inn og segist vera kaupandi, vegna þess að í Svíþjóð er kaup á vændi bönnuð og því er verið að viðurkenna lögbrot um leið.
mbl.is Vændiskaupendur fari í samtalsmeðferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

af ávöxtunum skuluð þið þekkja þá!!!

"Af afvöxtunum skuluð þið þekkja þá" var notað af Silla og Valda og núna þekkjum við íslenskar plöntur af íslenska fánanum hvað á að merkja sérstaklega næst. Ég vona svo sannarlega að Opal, Svali, og Kókó Mjólk fái íslenska fánann.
mbl.is Íslenskar garðplöntur merktar með fánaröndinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú liggja Danir í því..

Bjarne Riis er ein af stóru nöfnunum í íþróttasögu Dana og nú má setja spurninga merki fyrir aftan það. 
mbl.is Bjarne Riis játar lyfjanotkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað næst...

fáum við að vita að Eiður Smári hafi farið í klippingu, hafi keypt sér gallabuxur eða drukkið Egils Appelsín í hádeginu. Mig grunar að Ívar Benediktsson hafi ekki skrifað þessa frétt.
mbl.is Eiður í leikmannahópi Barcelona
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guð blessi þá...

Það er ekki hægt annað en að brosa að þessu þjófum. Guð blessi þá!!!
mbl.is Stálu biblíu og sálmabók úr kirkju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Herdís eða Guðrún Ögmunds

Mig grunar að Herdís Þorvalds eða Guðrún Ögmunds muni berjast um að vera umboðsmaður barna.

mbl.is Þrettán sóttu um embætti umboðsmanns barna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt mér að þakka

Ég vil þakka mér þessa auknu ásókn að mbl.is ég held að bloggið mit hafi skilað mbl.is þessari aukningu og mun ég fara fram á staðfestingu á því frá Hádeigismóum.
mbl.is Aukin aðsókn að mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Valgerður í slaginn

Ég typpa á að í framboði til varaformanns Framsóknar verði Valgerður, Siv, Björn Ingi og Bjarni Harðar.

Ég vona að Bjarni Harðar fari í slaginn, hann er einn mesti snillingur sem gengur á þessari jörðu. 


mbl.is Valgerður boðar til blaðamannafundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband