Ég styð Austurríki..

Ég skora á Íslensk stjórnvöld að draga þetta framboð sitt til baka og lýsa yfir stuðningi við Austurríki. Við eigum ekki að spandera öllum þessum milljónum í þetta sæti, dýrir voru nýju stólarnir á Alþingi en þetta eina sæti er allt oft dýrt til að það sé þess virði. Ég styð Austurríki...
mbl.is Valdarán í Tyrklandi?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pólítískurkvennaljómi!!!

Össur Skarphéðinsson er náttúrulega snillingur og þegar hann sagðist vera pólitískurkvennaljómi þá fær hann plús í pylsu fyrir þessa setningu. 

Í þeim gömlu...

Það er sko sannarlega mikill fengur fyrir kartöflubændur í Þykkvabæ að fá Árna Matt í sinn góða bæ. Þarna er á ferðinni einn albesti stjórnmálamaður sem situr á Alþingi í dag. Ég hef alltaf haft miklar mætur á FH-ingnum og hefur álit mitt á honum aukist mikið síðustu ár. Góður maður þarna á ferð. Væri til í að kjósa hann en hann er ekki lengur í mínu kjördæmi. 

Í þeim gömlu kartöflugörðunum heima 


mbl.is Árni flytur lögheimili í Þykkvabæ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Setning kosningabaráttunar til þessa....

Valgerður Sverrisdóttir koma með frábæra setningu í Silfri Egils í gær. Þar var Ögmundur að skjóta á ríkisstjórnina fyrir að loka pósthúsum á landinu þá svaraði Valgerður "Til hvers að hafa pósthús ef engin kemur með bréf" Þar hafiði það þetta er kosningabarátta framsóknarflokksins í ár.

1.mai afmælisdagur lélegs íþróttafélags.

Í dag held ég að verkalýðurinn á Íslandi ætti að þakka fyrir hvað við höfum haft góða ríkisstjórn hérna síðustu árin. Einnig ætti verkalýðurinn að láta reisa styttu af Davíð Oddsyni af því að engin hefur gefið verkalýðnum meira en sá maður. Verkalýðurinn á að biðja um áframhaldandi skattalækkanir og berjast fyrir því að Sjálfstæðisflokkurinn verði áfram við völd. Annað er bara vitleysa.

 Annars finnst mér 1.mai ekkert merkilegur dagur, á þessum degi fyrir mörgum árum var lélegasta íþróttafélag Vestmannaeyja stofnað en það fékk þá nafnið Týr. Sem betur fer var þetta félag lagt niður og hefði mátt gera það miklu fyrr. Íþróttafélagið Þór lifir enn góðu lífi enda aldrei samþykkt á aðalfundi þess að leggja félagið niður.

En þið Týrarar sem enn eruð til til hamingju með daginn. 


mbl.is Krafan 1. maí að fátækt verði útrýmt á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju með afmæið gamli..

Karl XVI Gustav er magnaður maður, mikill áhugamaður um sportbíla og hraðskreyða báta og hinn fínasti kongur. Þegar ég bjó í Svíþjóð fyrir 10 árum fékk ég mikin áhuga á dætrum hans Vikroriu og Magdalenu. Þær eru með fallegri kvennmönnum sem ganga hér á jörð.

 


mbl.is Svíakonungur á afmæli í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að kveikja sinu

Það var alltaf gaman þegar við peyjarnir vorum að kveikja sinu og fá okkur einn njóla. Ekki gátum við sótt um leyfi eins og þessi bóndi og er ég þess full viss að sýslumaður hefði líklega hafnað beiðni okkar um leyfi til sinu bruna.
mbl.is Fjölmargar kvartanir vegna sinubruna í Eyjafirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég kannast ekki við það

Þessa setningu notar Jón Sigurðsson formaður Framsóknarflokksins oft í umræðum við fjölmiðlamenn. Í Kastljósinu sagðist hann ekki kannast við það að mál Jónínu sé erfitt fyrir Framsóknarflokkinn. Hann sagðist ekki kannast við það að mál um skipti á stjórnarformanni í Landsvirkjun væri að valda innanflokksdeilum í Framsókn. Gaman að Jóni en minnið er líklega ekki að virka þegar á reynir.

Helgi Hjörvar er Emil í Kattholti.

Ekki vissi ég að sem krakki hefði ég haft Helga Hjörvar í eyrunum að syngja Emil í Kattholti. Núna þegar dóttir mín er farin að hlusta á þessa gömlu góður plötu þá tók ég eftir því að Helgi Hjörvar söng inn rödd Emils í Kattholti.

 


Dead bolt in rooms

Er að fara til London næstu helgi að horfa á fótbolta og ég var að skoða hótelið sem við gistum á og það er "Dead bolt in rooms" nú hef ég farið nokkuð víða og gist á mörgum hotelum en "Dead bolt in rooms" hef ég aldrei séð áður. Getur einhvern útskýrt fyrir mér hvað það er?

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband