14.2.2008 | 08:50
Það er bara eitt í stöðunni......
Staða Sjálfstæðisflokksins er langt frá því að vera ásættanleg miðað við þessa könnun. REI-málið hefur skaðað flokkinn mikið og er bara hægt að skrifa þann skaða á einn mann, og það án afsláttar. Þegar Sjálfstæðisflokkurinn á landsvísu tapar á gjörðum Villa þá er þetta ekki lengur einkamál flokksins í Reykjavík. Gjörðir Villa er dýrar fyrir flokkinn en með hverjum deginum verð ég stoltari og stoltari af hinum borgarfulltrúum flokksins sem létu sannfæringuna ráða för og fóru gegn leiðtoga sínum og stoppuðu gjörðir hans og Binga.
Ósk mín er sú að Villi gefi það út sem fyrst að hann ætli að hætta og helst mætti Geir H. Haarde fara með honum. Hann hefur staðið sig illa í þessu máli og þetta mál sýnir svart á hvítu hversu slakur leiðtogi hann er.
Ókeypis auglýsing í boðir Kjartans Vídó:
www.eyjar.net - svo miklu meira en fréttir!!!!
www.VisitWestmanIslands.com "Paradís í suðri"
![]() |
Samfylkingin stærst allra flokka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Það er ekki hægt að skrifa þetta á einn mann. Ef forustan og borgarfulltrúar hefðu bein í nefinu væri búið að dumpa Villa... og hann væri óbreyttur borgarfulltrúi. En græðgin í völd og áhrif er allri skynsemi yfirsterkari.
Jón Ingi Cæsarsson, 14.2.2008 kl. 09:50
Könnunin var gerð 5-7 febrúar en REI skýrslan var kynnt 7. febrúar - og pólítískt sjálfsmorð Villa (og flokksins með) hófst svo dagana þar á eftir.
Ekki það, það er að verða svo greinilegt að þetta er langt frá því að vera mál Villa. Að sjálfsögðu væri Flokksforustan búin að leysa hann - og þar með Flokkinn - úr snörunni ef það væru nokkur tök á því. Vandamálið er klárlega að menn vita ekki hvað á að gera þegar Villi er farinn!
Og eins og Jón Ingi bendir á hérna að ofan þá snýst þetta miklu frekar um viðbrögð forustunnar og borgarfulltrúana en nokkurn tíma Villa. Það var til dæmis hrein skemmtun að horfa á Jórunni Frímannsdóttur halda því fram að það væri bara ekkert rétt að borgarfulltrúar vildu ekki láta ná í sig....
Steingrímur Jónsson (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 10:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.