Eru vinstri grænir lagðir í einelti...

Fyrir nokkrum mánuðum voru flestir stjórnmálamenn og álitsgjafar að sauma að framsóknarflokknum. Núna er í tísku að sauma að vinstri grænum. Var að horfa á Silfrið og mér þótti svakalega leiðinlegt að horfa á það sem ég kalla röfl dagsins. Eins og það er oft gaman að horfa á þennan þátt þá var þetta röfl í dag ótrúlega leiðinlegt. Einhver framsóknarmaður kom þarna og var með derring og skæting og þusandi með púlsinn í botni. Þannig menn eru leiðinlegir í sjónvarpinu. Ögmundur var eins og alltaf staðfastur þó svo að aldrei get ég verið sammála honum. Árni Páll frá Samfylkingunni var sæmilegur, finnst hann hafa fallið í verði eftir þetta röfl hans og Jóns Baldvins um hleranir á símum þeirra. Illugi aka Hrollur var ágætur og er erfitt fyrir mig að dæma hann vegna þess að hann er einn af mínum uppáhalds stjórnmálamaður.

Set á síðuna skoðannakönnun um líklega ríkisstjórn eftir næstu kosningar. Endilega kjósið....

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband