Ingibjörg Sólrún, ég elska þig!!!!

Það er magnað að fylgjast með því hvernig hver skoðannakönnunnin á fætur öðrum er að mæla Samfylkinguna með minna og minna fylgi. En það sem er að drepa þennan blessaða flokk er auðvitað Ingibjörg Sólrun. Þessi elska talaði niður til sinna samstarfsmanna í þingflokknum á fundi í Keflavík og sagði að þeim væri ekki treystandi, sem er rétt. En rétt fyrir þessi ummæli hafði Samfylkingin klárað öll sín prófkjör og þar varð lítil sem engin endurnýjun fyrir komandi kosningar. Og þess vegna má segja að Samfylkingin ætli að bjóða aftur upp þá  frambjóðendur sem formaðurinn treystir ekki. Hvað er hægt annað en að elska svona konu eins og Ingibjörgu, hún drap R-listann og núna er hún að drepa Samfylkinguna. Ingibjörg þú ert best!!!!!!
mbl.is Vinstri grænir mælast með 21% fylgi í nýrri Gallupkönnun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Góður ;) En þetta er auðvitað alveg satt, Ingibjörg er auðvitað snillingur :D

Hjörtur J. Guðmundsson, 1.2.2007 kl. 21:45

2 identicon

Guð hjálpi okkur öllum ef þessi kommúnistaflokkur kemst til valda.

Geir Jónsson (IP-tala skráð) 1.2.2007 kl. 22:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband